19.11.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Brasilíumaðurinn Cesar til Bologna (Staðfest)

Cesar í leik með Inter Milan.

Mynd: Getty Images

Cesar í leik með Inter Milan.

Mynd: Getty Images
Bologna á Ítalíu hefur samið við brasilíska kantmanninn Cesar og þar hittir hann fyrir Sinisa Mihajlovic þjálfara liðsins en saman léku þeir áður hjá Lazio og þeir voru líka báðir hjá Inter Milan á síðustu leiktíð þar sem Mihajlovic var aðstoðarmaður Roberto Mancini.
Allir voru þeir þrír svo látnir fara þegar Jose Mourinho tók við knattspyrnustjórinni hjá Milan fyrir tímabilið. Cesar sagði í gær að Inter hafi ekki endurnýjað samninginn því hann hafi verið Mancini leikmaður.
,,Í júní gáfu þeir mér loforð, svo ég hefði ekki áhyggjur af því að leita að öðrum liðum. En svo heyrði ég aldrei frá þeim,\" sagði hann. ,,Fyrir fjórum og hálfum mánuði var ég ítalskur meistari. Svo var mér ýtt til hliðar, yfirgefinn af öllum, án lið, það var mjög erfitt.\"
Mihajlovic hefur gert tvö jafntefli með liðinu síðan hann tók við af Daniele Arrigoni fyrr í mánuðinum.
Cesar sem er 34 ára gamall hefur einnig leikið með Corinthians og Livorno.

Heimild: AP