Fotbolti.net
19.12.04 - 13:06
Magnús Már Einarsson

Bjarni til Plymouth (Staðfest)

Bjarni til Plymouth (Staðfest)
Canon
Bjarni Guðjónsson hefur yfirgefið Coventry og gengið til liðs við Plymouth annað lið í fyrstu deildinni á Englandi. Bjarni sem leikur ýmist á kantinum eða á miðjunni gekkst undir læknisskoðun hjá Plymouth á föstudaginn og skrifaði undir 18 mánaða samning við félagið. Hann kom svo inn á sem varamaður hjá Plymouth í gær þegar að liðið tapaði 2-0 fyrir Derby.
Bjarni sem kom til Coventry frá Bochum í sumar spilaði 10 leiki með enska liðinu, þann síðasta gegn Middlesbrough í 3-0 tapi í deildabikarnum í október.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.