19.12.09 - 18:54
Hafliði Breiðfjörð
Mark Hughes rekinn frá Man City - Mancini tekur við (Staðfest)

Roberto Mancini er kominn í ensku deildina.

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur staðfest að Mark Hughes hefur verið rekinn frá félaginu og Roberto Mancini tekur við starfi hans. Hughes hafði stýrt liðinu í 18 mánuði en náði ekki að uppfylla kröfur Abu Dhabi United Group um árangur en það er móðurfyrirtæki félagsins.
Man City hefur aðeins tapað tveimur leikjum í úrvalsdeildinni á tímabilinu en tveir sigrar í ellefu leikjum urðu til þess að Hughes var rekinn í dag þrátt fyrir 4-3 sigur á Sunderland í dag en þar var Mancini í stúkunni og Hughes stýrði sínum síðasta leik.
Khaldoon Al Mubarak formaður City útskýrði ástæður sínar fyrir ákvörðuninni og sagði þetta erfiða ákvörðun að taka.
,,Áður en núverandi leiktíð hófst, og eftir miklar fjárfestingar í leikmönnum og innra skipulagi félagsins, voru þjálfarar og stjórn félagsins sammála um að það þyrfti að setja viðeigandi markmið fyrir tímabilið 2009/2010,\" sagði hann á vef félagsins.
,,Menn samþykktu markmiðin í kjölfar leikmannakaupa stefnu félagsins sem bætt var verulega í síðastliðið sumar og aðstæður voru mjög góðar fyrir félag sem var að kaupa. Þau voru líka byggð á þeirri staðreynd að innra skipulagi félagsins hafði verið breytt algjörlega og mikill kostnaður settur í að búa til sem best umhverfi fyrir liðið.\"
,,Aðeins tveir sigrar í 11 úrvalsdeildarleikjum er alls ekki í samræmi við markmiðin sem við samþykktum að setja. Sheikh Mansour og stjórninni fannst sem það væru engin merki um að staðan myndi breytast verulega.\"
,,Þetta er frekar erfið ákvörðun að tilkynna miðað við persónulega tengingu undanfarna 15 mánuði í allar áttir, og við viljum taka fram að við berum mikla virðingu fyrir, og þökkum Mark Hughes og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.\"
Mancini gerir svo þriggja og hálfs árs samning við félagið. Brian Kidd verður aðstoðarmaður hans en Mark Bowen, Eddie Niedzwiecki, Kevin Hitchcock og Glyn Hodges sem voru í þjálfarateymi Hughes hætta allir.

Heimild: Sky