Diego Simeone er í viðræðum við Atletico Madrid um framlengingu á samningi hans.
Simeone er á sínu tíunda ári með liðið en núverandi samningur hans rennur út eftir næsta tímabilið. Stefnan er á að framlengja til ársins 2024.
Simeone er sagður vera tilbúinn til að taka á sig launalækkun vegna heimsfaraldursins sem nú gengur yfir en þessu greinir spænska blaðið AS frá.
Simeone hefur verið orðaður frá Atletico undanfarið og hann gaf það í skyn á dögunum að hann væri á útleið þegar liðið féll úr leik í spænska bikarnum. Nú virðist hins vegar sagan vera önnur.
Þessa stundina er hans hæst launaðasti þjálfari heims. Liðinu hefur gengið vel á þessari leiktíð en það situr í efsta sæti spænsku deildarinnar og er komið áfram í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir