20.02.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Steindór Oddur til Gróttu - Þrír ungir semja (Staðfest)

vHafsteinn, Arnar Freyr og Hrafn ásamt Árna, Himari og Jóni stjórnarmönnum hjá Gróttu.

Mynd: Grótta

Steindór Oddur Ellertsson hefur gengið til liðs við Gróttu en hann kemur til félagsins frá KV.
Steindór Oddur er miðjumaður en hann skoraði í tíu mörk í átján leikjum þegar að KV komst upp í aðra deild í fyrra.
Grótta hefur einnig samið við Hafstein Bjarnason, Arnar Frey Gunnsteinsson og Hrafn Jónsson.
Þessir ungu leikmenn eru allir uppaldir hjá Gróttu og hjálpuðu liðinu að vinna aðra deildina í fyrra.
,,Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu fagnar þessum samningum við þessa efnilegu leikmenn hjá Gróttu sem eru að skila sér í meistaraflokk úr öflugu yngri flokka starfi félagins,\" segir á heimasíðu Gróttu.

Heimild: Heimasíða Gróttu