20.03.12 - 17:06
Magnús Már Einarsson
Christian Olsen í ÍBV (Staðfest)

Magnús Gylfason þjálfari Eyjamanna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Gylfason þjálfari Eyjamanna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski sóknarmaðurinn Christian Olsen hefur gengið til liðs við ÍBV en hann mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Þessi 28 ára gamli leikmaður kom til ÍBV á reynslu í síðasta mánuði þar sem hann skoraði meðal annars gegn ÍA í Fótbolta.net mótinu og í æfingaleik gegn Aftureldingu.
Fyrr í þessum mánuði kom Olsen aftur til æfinga hjá ÍBV og hann hefur nú fengið leikheimild með liðinu.
Olsen, sem er mjög snöggur, á að baki feril með dönsku liðunum FC Midtjylland, Viborg og Skive þar sem hann var á mála síðast.
Olsen verður væntanlega í eldlínunni með ÍBV gegn Tindastóli í Lengjubikarnum á laugardag.