Fotbolti.net
20.04.12 - 18:00
Snorri Helgason

Steinarr Guðmundsson í KB (Staðfest)

Steinarr Guðmundsson í KB (Staðfest)
Canon

Mynd: Matthías Ægisson

Vinstri bakvörðurinn Steinarr Guðmundsson hefur fengið félagaskipti yfir í KB sem leikur í 3. deildinni. Steinarr hefur leikið fyrir Leikni síðan 2004 en hann ákvað eftir síðasta tímabil að leggja skóna á hilluna.
Hann hefur nú tekið skóna úr hillunni og mun leika sinn fyrsta mótsleik fyrir KB í kvöld þegar liðið fær Augnablik í heimsókn í Lengjubikarnum. Leikurinn hefst klukkan 20 á Leiknisvelli.

KB er varalið Leiknis og hefur verið mjög nálægt því tvö síðustu ár að komast upp í 2. deildina.

Steinarr verður 31 árs á árinu og hefur verið lykilmaður hjá Leikni. Í fyrra lék hann tólf leiki með liðinu í 1. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.