Lögreglan lét áhorfendur á Kópavogsvelli blása í áfengismæli

Eftir einn ei aki neinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir einn ei aki neinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lét alla stuðningsmenn sem keyrðu frá Kópavogsvelli eftir leik Breiðabliks og ÍA á föstudag blása í áfengismæli.
Flautað var til leiks klukkan 18 í blíðunni í Kópavogi og þótti eflaust mörgum tilvalið að fá sér öl með leiknum.
Breiðablik vann leikinn 1-0 sigur og skoraði Höskuldur Gunnlaugsson eina mark leiksins úr umdeildri vítaspyrnu.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 ÍA
Breiðablik sótti þar með sinn fyrsta sigur í Bestu deildinni þetta sumarið og er liðið með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Skagamenn eru með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 12 | +7 | 26 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 7 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 8 | Keflavík | 12 | -6 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |