Fotbolti.net
20.05.09 - 18:18
Magnús Már Einarsson

Luka Kostic tekur við Grindavík (Staðfest)

Milan Stefán Jankovic verður aðstoðarþjálfari

Luka Kostic.

Luka Kostic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luka Kostic hefur verið ráðinn þjálfari Grindavíkur í Pepsi-deild karla en hann hefur gert samning við félagið til ársins 2011. Luka tekur við starfinu af Milan Stefán Jankovic sem mun verða aðstoðarmaður hans hjá félaginu. Milan Stefán Jankovic óskaði eftir því við stjórn knattspyrnudeildar Grindavíkur að stiga til hliðar sem aðalþjálfari eftir leik Grindavíkur og Fjölnis.
Luka Kostic þjálfaði U17 og U21 árs landslið Íslendinga en samningur hans rann út um áramót og var ekki endurnýjaður.

Fyrr á árinu kom Luka til greina sem næsti landsliðsþjálfari Færeyja en nú er ljóst að hann mun þjálfa Grindvíkinga og taka við sem aðalþjálfari af Milan Stefán sem hefur þjálfað liðið frá því haustið 2007. Luka þekkir til í Grindavík því hann þjálfaði liðið frá 1994-1996.

Grindvíkingum hefur ekki gengið vel í upphafi tímabilsins en liðið er án stiga eftir þrjár umferðir.

Næsti leikur Grindvíkinga er gegn Val á mánudagskvöld. Milan Stefán verður í leikbanni þar en hann fékk að líta rauða spjaldið eftir 3-2 tap Grindavíkur gegn Fjölni í fyrrakvöld.

Yfirlýsing frá Grindavík:
Luka Kostic hefur verið ráðinn aðalþjálfari Grindavíkur en Milan Stefán Jankovic færir sig um set og verður aðstoðarþjálfari liðsins. Samningurinn við Luka Kostic er til 2011.

Milan Stefán Jankovic óskaði eftir því við stjórn knattspyrnudeildar Grindavíkur að stiga til hliðar sem aðalþjálfari eftir leik Grindavíkur og Fjölnis. Hann verður hins vegar aðstoðarþjálfari Luka Kostic og kemur í stað Eysteins Haukssonar sem einbeitir sér að því verkefni að vera leikmaður liðsins og yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Jafnframt mun Milan Stefán taka að sér þjálfun í yngri flokkunum og einstaklingsþjálfun. Knattspyrnudeild Grindavíkur lýsir yfir mikilli ánægu sinni með að Milan Stefán Jankovic skuli starfa áfram innan félagsins þar sem hann hefur verið meira og minna síðan 1992.

Þegar upp kom sú staða að Milan Stefán vildi hætta sem aðalþjálfari leitaði Grindavík fyrst til Luka Kostic að taka að sér starfið og gengu samningar fljótt og vel. Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Luka Kostic velkominn til starfa. Hann er ekki með öllu ókunnur í Grindavík því hann þjálfaði liðið 1994-1996 með frábærum árangri. Þá þjálfaði hann Víking og KR og hefur náð mjög góðum árangri með U17 og U21 árs landslið Íslands undanfarin ár.

Með ráðningu Luka Kostic sem aðalþjálfara og Milans Stefáns Jankovic sem aðstoðarþjálfara er ljóst að Grindavík hefur eitt öflugasta þjálfarateymi landsins í Pepsi-deildinni.
Milan Stefán Jankovic.

Milan Stefán Jankovic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.