Fotbolti.net
20.07.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Tuchel: Erfið ákvörðun að nota ekki Saka gegn Argentínu

Tuchel: Erfið ákvörðun að nota ekki Saka gegn Argentínu
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands hefur verið harðlega gagnrýndur eftir að England datt úr leik í undanúrslitum heimsmeistaramótsins eftir að hafa náð forystunni gegn Argentínu.
Fjórum mörkum yfir í hálfleik
TENGT EFNI

Fjórum mörkum yfir í hálfleik

Tuchel gerði mjög neikvæðar skiptingar sem urðu til þess að lærlingar hans bökkuðu alltof neðarlega á völlinn og buðu hættunni heim. Kantmaðurinn öflugi Bukayo Saka var ónotaður varamaður en fékk svo tækifæri í byrjunarliðinu í bronsleiknum gegn ógnarsterku liði Frakklands.

Saka skoraði þrennu í 6-4 sigri gegn Frökkum, sem höfðu komist alla leið í úrslitaleik HM síðustu tvö mót í röð.

„Saka var frábær gegn Frökkum," sagði Tuchel. „Hann var í góðu standi á HM en mér fannst mikilvægt að fara varlega með hann til að forða honum frá frekari meiðslum. Það var erfið ákvörðun að nota hann ekki í undanúrslitaleiknum."

Saka sjálfur var svekktur með lítinn spiltíma á HM þegar hann svaraði spurningum eftir þrennuna í bronsleiknum.

„Ég hefði augljóslega viljað spila meira á HM en núna er það of seint. Ég lét verkin tala en núna er mótið búið," sagði Saka. „Við sigruðum í dag en það bætir ekki upp fyrir sársaukann sem við upplifðum eftir leikinn gegn Argentínu. Við erum stoltir að hafa endað í þriðja sæti og munum nýta þetta sem bensín fyrir næstu mót. Þetta er besti árangur Englands á HM í 60 ár og við ætlum að gera betur næst."

HM: Þrenna frá Saka tryggði bronsið
TENGT EFNI

HM: Þrenna frá Saka tryggði bronsið

Tuchel: Erfið ákvörðun að nota ekki Saka gegn Argentínu
Canon

Mynd: EPA

Tuchel: Erfið ákvörðun að nota ekki Saka gegn Argentínu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.