Fotbolti.net
20.08.08 - 20:37
Davíð Örn Atlason

Mikael Silvestre til Arsenal (Staðfest)

Silvestre á börum eftir að hann meiddist gegn Everton á síðasta tímabili.

Silvestre á börum eftir að hann meiddist gegn Everton á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Mikael Silvestre er genginn í raðir Arsenal frá Englandsmeisturum Manchester United, en kaupverðið er óuppgefið.
Þessi 31 árs gamli bakvörður kom til United í septembermánuði árið 1999 og hann átti eitt ár eftir af samningi sínum hjá liðinu. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Lundúnarliðið.

Hann spilaði 249 leiki fyrir United í ensku úrvalsdeildinni en hann var einmitt líka orðaður við Manchester City og franska liðið Bordeaux.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal var ánægður með kaupin á Silvestre, sem var frá nánast allt síðasta tímabil vegna meiðsla í hné.

,,Við erum með sterkan, en ungan leikmannahóp. Fjölhæfni Mikael, reynsla hans og hæfileikar munu auka breiddina í hópnum,\" sagði Wenger.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.