20.09.26 - 20:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjartan Kári: Þessi ótrúlega þriggja vikna pása
Auglýsing

Kjartan Kári Halldórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Kári Halldórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er ótrúlega sætt," sagði Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, eftir 5-2 sigur gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í dag.
Kjartan Kári átti stórleik, var allt í öllu í sóknarleik FH og skoraði tvö mörk.

Lestu um leikinn: FH 5 - 2 Stjarnan
„Þetta var ótrúlegur leikur. Við vorum svolítið að koma okkur inn í leikinn fyrstu 10 mínúturnar en svo þegar fyrsta markið er komið þá komu þrjú mörk á eftir því. Við vorum gríðarlega flottir í fyrri hálfleiknum."
„Við hlupum fyrir hvorn annan og varnarleikurinn var mjög flottur," sagði Kjartan Kári.
FH er komið í góða stöðu eftir þennan leik upp á að halda sér í deildinni.
„Það er þessi ótrúlega þriggja vikna pása núna. Það er gríðarlega gott að fara með þetta á bakinu inn í fríið. Ég er virkilega stoltur af strákunum," sagði Kjartan Kári en það er þriggja vikna landsleikjahlé framundan.
„Þetta er mjög þreytt en við getum ekkert gert í þessu. Við þurfum bara að æfa vel."