20.10.08 - 09:58
Hafliði Breiðfjörð
Elísabet Gunnarsdóttir tekur við Kristianstads (Staðfest)

Elísabet hampar Íslandsmeistaratitlinum með Val í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísabet hampar Íslandsmeistaratitlinum með Val í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin þjálfari sænska félagsins Kristianstads en þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í dag.
Elísabet sagðist hafa klárað að samþykkja samninginn við sænska félagið þegar hún kom til Íslands eftir Evrópukeppnina með Val í síðustu viku en hún mun halda utan um næstu helgi og ganga frá samningum.
Elísabet hafði þjálfað Val undanfarin ár en tilkynnti í síðustu viku að hún myndi hætta þjálfun liðsins sem hún skilur við sem Íslandsmeistara þriðja árið í röð.
Erla Steina Arnardóttir landsliðskona Íslands leikur með Kristianstads.