20.11.08 - 12:15
Magnús Már Einarsson
Wayne Routledge til Cardiff á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City hefur fengið Wayne Routledge vinstri kantmann Aston Villa á láni.
Þessi 23 ára gamli leikmaður verður á láni hjá Cardiff í tvo mánuði og mun hann hjálpa liðinu á kantinum á meðan Joe Ledley og Peter Whittingham eru frá vegna meiðsla.
Ledley verður frá í mánuð og Whittingham verður frá næstu þrjá mánuðina vegna ökklameiðsla.
Routledge hefur einungis leikið einn leik í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en bæði Ashley Young og James Milner eru á undan honum í goggunarröðinni hjá Aston Villa.
Routledge kom til Aston Villa frá Tottenham í janúar síðastliðnum en hann hefur einnig leikið með Portsmouth, Fulham og Crystal Palace á ferli sínum.

Heimild: BBC