Fotbolti.net
20.11.08 - 12:53
Magnús Már Einarsson

Heiðar Helguson á láni til QPR (Staðfest)

Heiðar Helguson á láni til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur staðfest að Heiðar Helguson framherji Bolton sé kominn á láni til félagsins fram í janúar.
Heiðar skoraði sigurmark Íslendinga gegn Möltu í gær en þessi 31 árs gamli leikmaður hefur núna gengið frá lánssamningi við QPR.

Paulo Sousa tók í gær við stjórnartaumunum hjá QPR og Heiðar er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til félagsins eftir að hann tók við en reyndar hafa félagaskiptin verið í pípunum í um það bil viku.

Á þessu tímabili hefur Heiðar fengið lítið að spila með Bolton og aðeins komið við sögu í tveimur leikjum.

Heiðar hoppar beint inn í leikmannahóp QPR og gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið á laugadaginn þegar að liðið mætir hans gömlu félögum í Watford.

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.