Fotbolti.net
20.11.08 - 15:03
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Kristjánsson í KR (Staðfest)

Gunnar Kristjánsson á æfingu með U21 árs landsliði Íslands.

Gunnar Kristjánsson á æfingu með U21 árs landsliði Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Kristjánsson er genginn til liðs við KR að nýju en frá þessu var greint á vefsíðu KR í dag. Gunnar gerði samning við KR út leiktíðina 2010.

Gunnar hafði 1. nóvember staðfest í samtali við Fótbolta.net að hann myndi ganga til liðs við sitt gamla félag að nýju frá Víkingi og nú er það orðið að veruleika eftir að félögin kláruðu málin sín á milli.
Gunnar gekk í raðir Víkings frá KR fyrir tímabilið í fyrra og á fyrsta ári vann hann sér sæti í íslenska landsliðshópnum. Víkingur féll svo niður í 1. deild um haustið og náði ekki að komast upp að nýju í sumar.

Gunnar lék 17 leiki með Víkingi í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk.

Samtals hefur hann leikið 28 leiki með KR í Landsbankadeildinni þar sem hann lék fyrst sumarið 2004

Heimild: Vefsíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.