20.11.08 - 15:18
Gunnar Gunnarsson
Landon Donovan á láni til Bayern München (Staðfest)
góður liðsstyrkur rekur á fjörurnar hjá þýsku meisturunum

Bastian Schweinsteiger leiðbeinir Landon Donovan á æfingu liðsins í síðustu viku

Mynd: Getty Images

Bastian Schweinsteiger leiðbeinir Landon Donovan á æfingu liðsins í síðustu viku

Mynd: Getty Images
Bayern München hafa samið við landsliðsmann Bandaríkjanna, Landon Donovan um lánssamning sem gildir frá 1. janúar fram í marsmánuð. Einnig er hugsanlegt að leikmaðurinn verði út allt tímabilið í þýsku deildinni.
Hinn 26 ára gamli Donovan á að baki yfir 100 landsleiki fyrir þjóð sína en hann hefur æft með Bæjurum undanfarnar tvær vikur og hefur heillað þjálfara liðsins Juergen Klinsmann.
,,Markmiðið er að sjá hvort við getum samið við hann til lengri tíma, í það minnsta til loka þessa tímabils,\" sagði Klinsmann á opinberri heimasíðu Bayern.
Þess má geta að Donovan átti frábært tímabil með LA Galaxy en hann skoraði 20 mörk í 25 leikjum í deildarkeppninni bandarísku.

Heimild: Soccernet