20.11.08 - 22:53
Hafliði Breiðfjörð
Hólmfríður Magnúsdóttir til Kristianstad (Staðfest)

Hólmfríður í leik með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmfríður í leik með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmfríður Magnúsdóttir kantmaður Íslands og KR er gengin í raðir sænska félagsins Kristianstad en þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í kvöld. Hólmfríður tilkynnti KR í dag þessa ákvörðun sína.
Hólmfríður hafði farið til Svíþjóðar fyrr í mánuðinum til að skoða aðstæður hjá félaginu og var að hugsa um hvort hún myndi taka tilboði félagsins. KR bauð henni líka samning auk þess sem fleiri félög höfðu samband og að lokum stóð valið á milli KR og Kristianstad og hún valdi í kvöld síðari kostinn.
Hólmfríður er einn af bestu leikmönnum landsins og á fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins. Hún skoraði 18 mörk í 18 leikjum fyrir KR í Landsbankadeildinni í sumar en varð samningslaus frá félaginu eftir að tímabilinu lauk. Hún hefur leikið 110 leiki í efstu deild og skorað í þeim 101 mörk.
Hún er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Kristianstad eftir að Elísabet Gunnarsdóttir tók við liðinu því í gær hafði Guðný Björk Óðinsdóttir staðfest að hún færi til félagsins frá Val.
Rætt verður við Hólmfríði í viðtali hér á Fótbolta.net í fyrramálið.