20.12.04 - 08:14
Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry og Theódór Elmar til Celtic (Staðfest)

Kjartan Henry vinstra megin og Theodór Elmar hægra megin

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kjartan Henry vinstra megin og Theodór Elmar hægra megin

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason skrifuðu í gær undir samning við skoska úrvalsdeildarliðið Celtic til ársins 2007. Þetta kemur fram í Mogganum í morgun en KR gekk einnig frá samningum við skoska félagið í gær um söluna á leikmönnunum.
Nokkur félög hafa sýnt leikmönnunum báðum áhuga síðan Íslandsmótinu lauk í haust en auk auk Celtic hafði hollenska félagið Feyenoord sýnt mikinn áhuga.
Leikmennirnir hafa verið síðustu tvo daga hjá skoska félaginu þar sem gengið var endanlega frá samningum í gær.
Leikmennirnir hafa verið síðustu tvo daga hjá skoska félaginu þar sem gengið var endanlega frá samningum í gær.
