Fotbolti.net
20.12.09 - 10:03
Hafliði Breiðfjörð

Halldór Hilmisson í Þrótt (Staðfest)

Halldór Hilmisson snýr aftur í raðir Þróttar.

Halldór Hilmisson snýr aftur í raðir Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Þróttur sem leikur í 1. deild næsta sumar tilkynnti í nótt að félagið hafi samið við Halldór Hilmisson sem snýr aftur til félagsins frá Fylki þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.
Halldór þekkir vel til hjá Þrótti þar sem hann var í fimm ár til ársins 2006. Hann er 32 ára gamall og hefur leikið 182 leiki í deild og bikar, flesta fyrir Þrótt og Fylki og skorað í þeim 23 mörk.

Hann yfirgefur nú Fylki þar sem hann átti fast sæti í sumar og lék 21 af 22 leikjum liðsins í deildinni í sumar og skoraði þrjú mörk.

,,Það er ljóst að Halldóri verður ætlað stórt hlutverk hjá Þrótti á næsta keppnistímabili þar sem útsjónarsemi hans og reynsla á eftir nýtast sérlega vel í harðri baráttu um sæti í efstu deild,\" sagði í yfirlýsingu frá Þrótti.

Þróttur hefur verið að styrkja lið sitt fyrir komandi ár en þeir Erlingur Jack Guðmundsson, Hjörvar Hermannsson, Magnús Már Lúðvíksson, Moamir Saducovic og Hörður S. Bjarnason eru komnir til félagsins.

Þeir hafa misst Odd Inga Guðmundsson í Fylki og Rafn Andra Haraldsson í Breiðablik auk þess sem ljóst þykir að Haukur Páll Sigurðsson leiti á önnur mið enda nokkur félög í viðræðum við hann.

Heimild: Vefur Þróttar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.