Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 21. janúar 2021 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski bikarinn: Lazio sló Parma úr leik
Mynd: Getty Images
Lazio 2 - 1 Parma
1-0 Marco Parolo ('23)
1-1 Valentin Mihaila ('83)
2-1 Simone Colombi ('90, sjálfsmark)

Lazio er síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins eftir 2-1 sigur á Parma í kvöld.

Lazio var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og kom Marco Parolo knettinum í netið. Heimamenn í Róm voru óheppnir að tvöfalda ekki forystuna fyrir leikhle.

Síðari hálfleikur var jafnari þar sem gestirnir frá Parma voru hættulegri. Þeir náðu þó ekki að gera jöfnunarmark fyrr en á lokakaflanum þegar Valentin Mihaila kom knettinum í netið.

Þegar allt stefndi í framlengingu leit sigurmark dagsins ljós. Simone Colombi varð þá fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og 2-1 sigur Lazio staðreynd.

Lazio mætir Atalanta í stórleik í 8-liða úrslitum. Þar má einnig finna Napoli, Inter, Milan og Juventus auk Spezia og Spal.
Athugasemdir
banner
banner
banner