21.02.10 - 08:43
Hafliði Breiðfjörð
Derby fær Sunu á láni frá Arsenal (Staðfest)

Gilles Sunu.

Mynd: Getty Images

Gilles Sunu.

Mynd: Getty Images
Derby County hefur fengið Gilles Sunu, 18 ára framherja Arsenal, á láni út tímabilið.
Nigel Clough stjóri Derby hefur verið að reyna að fá framherja til liðs við sig undanfarnar vikur og Sunu var efstur á óskalista hans.
,,Það hefur tekið tíma að ná þessu í gegn en við erum ánægðir með að hafa getað klárað samning,\" sagði Clough.
,,Hann kemur með ferskleika í framlínuna í viðbót við það sem Rob Hulse, Kris Commons og Chris Porter hafa verið að gera fyrir okkur.\"
Sunu er U19 ára landsliðsmaður Frakklands sem kom til Arsenal árið 2007. Hann hefur aðeins tvisvar leikið með aðalliði Arsenal.