21.03.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Garpur og Jóhann í Víði (Staðfest)

Jóhann Helgi Aðalgeirsson.

Mynd: Boltamyndir

Jóhann Helgi Aðalgeirsson.

Mynd: Boltamyndir
Víðir Garði úr 2.deild fékk í gær Garp Elísabetarson og Jóhann Helga Aðalgeirsson til liðs við sig.
Garpur lék í fyrra með KV þar sem hann lék sextán leiki og hjálpaði liðinu að komast í úrslitakeppninni. Hann hefur áður leikið með Gróttu og Skallagrími hér á landi.
Jóhann Helgi lék síðast með GG í þriðju deildinni sumarið 2007 en í fyrra var hann í fríi frá fótbolta.
Jóhann á leiki að baki í efstu deild með Grindavík en hann lék með liðinu sumarið 2005. Þá hefur hann einnig leikið með Sindra og Njarðvík hér á landi.
Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild geta þeir leikið með Víði gegn Dalvík/Reyni í Lengjubikarnum á morgun.