21.03.12 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Giuseppe „Joe\" Funicello aftur í Þór (Staðfest)

Joe í leik með Þórsurum árið 2010.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Joe í leik með Þórsurum árið 2010.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Þórsarar hafa samið við Guiseppe ,,Joe\" Funicello um að leika með liðinu í sumar. Joe er Ítali en hann ólst upp í Bandarikjunum. Hann er væntanlegur á Akureyri í lok apríl.
Joe, sem er 24 ára gamall vinstri bakvörður, lék með Þórsurum þegar liðið komst upp úr fyrstu deildinni árið 2010.

Í kjölfarið fór hann til FK Mariehamn í finnsku úrvalsdeildinni og síðastliðið sumar gekk hann til liðs við VPS sem leikur einnig í finnsku úrvalsdeildinni.
Joe hefur nú lokið keppni í Finnlandi og ljóst er að hann mun leika með Þórsurum í sumar.
,,Hann hafði mikinn áhuga á að koma aftur,\" sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs við Fótbolta.net í dag.
,,Hann er flottur náungi og góður í fótbolta. Við höfum góða reynslu af honum þannig að við þurftum ekki að hugsa okkur lengi um.\"