Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 21. mars 2020 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sindri fær Abdul Bangura og markvörð frá Lettlandi (Staðfest)
Mynd: Sindri
Sindri hefur staðfest komu tveggja erlendra leikmanna til félagsins sem eiga að hjálpa liðinu í 3. deildinni í sumar.

Lettneski markvörðurinn Glebs Sopots, fæddur 1996, er búinn að skrifa undir samning en hann hefur áður leikið fyrir FC Kupiskis, SC Grobinas og FK Liepaja.

Þá er Abdul Bangura, betur þekktur sem Jay Jay, einnig búinn að skrifa undir samning út tímabilið.

Abdul, 23 ára, kemur frá Síerra Leóne. Hann lék sjö leiki fyrir Sindra í fyrra þegar hann var hjá félaginu að láni frá Víkingi Ólafsvík.

Sindri rétt bjargaði sér frá falli úr 3. deildinni í fyrra. Liðið endaði með 21 stig, einu stigi fyrir ofan KH.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner