Manchester United ætlar í dag að leggja fram formlega kvörtun til Dómarasamtakanna á Englandi.
Samkvæmt heimildum Daily Mail eru forráðamenn United brjálaðir eftir frammistöðu Stuart Attwell í 2-2 jafnteflinu gegn Bournemouth í gær.
Samkvæmt heimildum Daily Mail eru forráðamenn United brjálaðir eftir frammistöðu Stuart Attwell í 2-2 jafnteflinu gegn Bournemouth í gær.
Það var mjög umdeilt atvik sem átti sér stað í stöðunni 0-1 fyrir Man Utd. Bruno Fernandes náði forystunni fyrir Man Utd með marki úr vítaspyrnu og vildu Rauðu djöflarnir fá dæmda aðra vítaspyrnu þegar Amad Diallo féll til jarðar nokkrum mínútum síðar. Attwell lét leikinn halda áfram og skoruðu heimamenn í Bournemouth úr sókninni sem þeir fengu í kjölfarið.
United kvartaði sárann yfir markinu en VAR-teymið ákvað að skerast ekki í leikinn þó að Diallo hafi mögulega haft eitthvað til síns máls.
Til að strá salt í sárin fékk Bournemouth vítaspyrnu síðar í leiknum og Harry Maguire var sendur í sturtu. Man Utd telur að brotið hjá Maguire hafi verið svipað og í tilvikinu þar sem United fékk ekki vítaspyrnu.
United telur að dómaramistök hafi kostað liðið mörg stig á þessu tímabili og hefur núna kvartað til Howard Webb, sem er yfirmaður Dómarasamtakanna á Englandi.
Athugasemdir

