Fotbolti.net
21.07.08 - 06:00
Davíð Örn Atlason

Soren Larsen til Toulouse (Staðfest)

Soren Larsen til Toulouse (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Soren Larsen er genginn til liðs við franska liðsins Toulouse frá þýska félaginu Schalke.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hafði verið þrjú ár hjá Schalke en fékk ekki að spila eins mikið og hann hafði viljað á síðasta tímabili og fór því frá félaginu.

Þrátt fyrir þessa bekkjarsetu setti Larsen nokkur mörk með Schalke á síðasta tímabili eftir að hafa komið af bekknum.

Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við liðið, en hann mun fylla skarð Johan Elmander, sem fór til Bolton.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.