Fotbolti.net
21.07.08 - 10:02
Magnús Már Einarsson

Aljosa Gluhovic til Grindavíkur (Staðfest)

Löglegur fyrir leikinn gegn KR í kvöld

Aljosa Gluhovic (til vinstri).

Aljosa Gluhovic (til vinstri).

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Slóvenski miðjumaðurinn Aljosa Gluhovic er genginn í raðir Grindvíkinga en hann kemur til félagsins frá Hetti.
Aljosa hefur leikið með Hetti undanfarin tvö tímabil en hann kom til liðsins í fyrravor.

Þessi 23 ára gamli leikmaður skoraði eitt mark í fjórtán leikjum með Hetti í fyrra en í ár hefur hann skorað tvö mörk í átta leikjum í annarri deildinni.

Þá skoraði Aljosa einnig í 32-liða úrslitum Visa-bikarsins í síðasta mánuði en þar tapaði Höttur 2-1 fyrir Grindavík.

Aljosa lék sinn síðasta leik með Hetti á laugardaginn þegar að liðið gerði 1-1 jafntefli við Víði Garði.

Hann hefur þegar fengið leikheimild með Grindavík og má því leika með liðinu gegn KR í kvöld. Þar getur Gilles Mbang Ondo einnig leikið sinn fyrsta leik með Grindavík eftir að hann fékk leikheimild 15.júlí.

Grétar Ólafur Hjartarson hefur einnig fengið leikheimild með Grindavík en hann má hins vegar ekki spila í kvöld vegna ákvæðis sem var í samningnum þegar hann yfirgaf KR fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.