Fotbolti.net
21.07.08 - 14:08
Magnús Már Einarsson

Pálmi Rafn til Stabæk (Staðfest)

Pálmi Rafn til Stabæk (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pálmi Rafn Pálmason er orðinn leikmaður Stabæk en hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag.
Pálmi Rafn lék sinn síðasta leik með Val þegar að liðið mætti Keflavík í fyrradag.

Í kvöld mun hann fylgjast með leik Stabæk og Fredrikstad áður en hann heldur aftur til Íslands á morgun. Hann mun síðan fara aftur til Noregs á föstudag.

Fyrsti leikurinn sem Pálmi Rafn mun leika með Stabæk er gegn Bodø/Glimt sunnudaginn 3.ágúst eða eftir um það bil tvær vikur.

Hjá Stabæk er annar íslenskur leikmaður en það er Veigar Páll Gunnarsson sem hefur verið lykilmaður hjá liðinu undanfarin ár.

Heimild: Heimasíða Stabæk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.