Fotbolti.net
21.07.08 - 16:07
Hörður Snævar Jónsson

Richard Wright til Ipswich frá West Ham (Staðfest)

Richard Wright til Ipswich frá West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich hefur gengið frá kaupunum á markverðinum Richard Wright frá West Ham en kaupverðið er ekki gefið upp.
Þessi þrítugi markvörður skrifar undir tveggja ára samning við Ipswich með möguleika á að framlengja um eitt ár.

Wright er að snúa til síns gamla félags en árið 2001 lék hann með Ipswich áður en hann gekk í raðir Arsenal fyrir 6 milljónir punda en náði ekki að sanna sig þar.

Hann var svo í fimm ár hjá Everton áður en hann gekk í raðir West Ham árið 2007 en hann var á láni hjá Southampton á síðustu leiktíð.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.