Fotbolti.net
21.07.08 - 17:10
Hafliði Breiðfjörð

Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir taka við ÍA (Staðfest)

Arnar og Bjarki taka við ÍA.

Arnar og Bjarki taka við ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir skrifuðu nú rétt í þessu undir samning við ÍA um að þjálfa liðið út tímabilið en þeir taka við af Guðjóni Þórðarsyni sem var rekinn í gærkvöld.
Gísli Gíslason formaður rekstarfélags meistara- og 2. flokks ÍA staðfesti við Fótbolta.net nú síðdegis að búið væri að undirrita samningana. Gísli vildi ekki tjá sig frekar um hvort þeir fengju að spila með liðinu eða stýra því í leiknum gegn FH á sunnudag en Arnar og Bjarki koma frá FH.

Pétur Stephensen framkvæmastjóri FH segir á vefsíðu stuðningsmanna félagsins, FHingar.net, að bræðurnir muni hvorki stýra liðinu í þeim leik né spila leikinn.

,,Þeir munu ekki spila leikinn við okkur um næstu helgi og munu heldur ekki stjórna liðinu af hliðarlínunni,\" sagði Pétur í samtali við FHingar.net.

Arnar og Bjarki tóku við þjálfun ÍA á miðju tímabili 2006 er Ólafur Þórðarson hætti þjálfun liðsins. Undir stjórn þeirra þótti liðið spila skemmtilegan sóknarbolta, gengi liðsins snerist við og eftir að hafa verið í basli fram að komu þeirra bjargaði liðið sæti sínu í deildinni, endaði í 6. sæti með 22 stig.

Að tímabilinu loknu var þeim tilkynnt að starfskrafta þeirra yrði ekki óskað áfram og Guðjón Þórðarson tæki við. Arnar og Bjarki gengu þá í raðir FH þar sem þeir hafa verið sem leikmenn þar til núna þegar þeir fara til ÍA að nýju sem spilandi þjálfarar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.