Fotbolti.net
21.08.08 - 18:03
Brynjar Ingi Erluson

Djibril Cissé lánaður til Sunderland (Staðfest)

Djibril Cissé lánaður til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hafa fengið til sín franska framherjann Djibril Cissé frá Marseille á láni út tímabilið.
Cissé, sem er 27 ára gamall gekkst undir læknisskoðun í dag og stóðst hana og mun því leika með Sunderland út tímabilið á láni, en félagið hefur tækifæri á að kaupa hann þegar láninu lýkur.

Cissé mun því snúa aftur í ensku úrvalsdeildinni, en eins og flestum er kunnugt þá lék hann tvö tímabil með Liverpool áður en hann var seldur til Marseille.

Hann lék 75 leiki og skoraði 37 mörk fyrir Marseille, en hann var meðal markahæstu manna frönsku deildarinnar í fyrra.

Roy Keane stjóri Sunderland hefur verið býsna duglegur í félagaskiptiglugganum í sumar en hann hefur fengið þá Steed Malbranque, Teemu Tainio, Pascal Chimbonda og El-Hadji Diouf til félagsins.

Þá er von á því að David Healy, framherji Fulham muni skrifa undir samning á næstu klukkutímunum en hann er í þann mund að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.