Fotbolti.net
21.12.09 - 19:27
Magnús Már Einarsson

Ivan Campo semur við félag á Kýpur (Staðfest)

Ivan Campo semur við félag á Kýpur (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ivan Campo hefur gert sex mánaða samning við AEK Larnaca sem leikur í næstefstu deild á Kýpur.
Þessi 35 ára gamli varnarsinnaði miðjumaður hefur verið án félags síðan að hann yfirgaf Ipswich Town í sumar.

,,Campo og Marios Ellinas forseti félagsins þekkjast vel og hann hefur samþykkt að spila með AEK til að hjálpa liðinu að komast upp í fyrstu deild þar sem það á heima,\" sagði Demetris Georgiades talsmaður AEK.

Hinn hárprúði Campo lék á sínum tíma með Real Madrid áður en hann lék í nokkur ár með Bolton Wanderers á Englandi.

Heimild: Heimasiða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.