Fotbolti.net
22.02.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Vilhjálmur Þór í Hamar (Staðfest) - Ágúst Örlaugur framlengir

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson eftir að gengið var frá samningum.

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson eftir að gengið var frá samningum.

Canon

Mynd: Vilbogi M. Einarsson

Hamar hefur fengið miðjumanninn Vilhjálm Þór Vilhjálmsson til liðs við sig.
,,Stjórn knattspyrnudeilds Hamars fagnar komu Vilhjálms og býður hann velkominn,\" segir í yfirlýsingu frá Hamar.

Vilhjálmur er miðjumaður og uppalinn í Fram en hann spilaði seinni hluta móts síðastliðið sumar með Aftureldingu.

Í fyrradag skrifaði Ágúst Örlaugur Magnússon fyrirliði Hamars einnig undir nýjan samning við félagið.

Ágúst Örlaugur hefur verið einn af mátarstólpum Hamars eins og sást á síðasta ári er hann snéri aftur eftir stutta dvöl í Noregi.

,,Stjórn knattspyrnudeilds Hamars fagnar þessu því einhver lið höfðu verið að falast eftir honum,\" segja Hamarsmenn um samninginn hjá Ágústi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.