Fotbolti.net
22.03.09 - 07:23
Alexander Freyr Tamimi

Sinisa Kekic í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Sinisa Kekic mun reynast Reyni Sandgerði gríðarlegur liðsstyrkur.

Sinisa Kekic mun reynast Reyni Sandgerði gríðarlegur liðsstyrkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

Reynsluboltinn Sinisa Valdimar Kekic skrifaði í gærkvöldi undir samning við Reyni Sangerði og mun hann reynast gríðarlegur liðsstyrkur þar á bæ.
Kekic hefur verið mjög áberandi í íslenska boltanum og getur hann spilað nánast hvaða stöðu sem er á vellinum. Hann lék lengst af með Grindavík, á árunum 1996 til 2006. Hann hefur einnig leikið með Þrótti Reykjavík, Víkingi Reykjavík og nú síðast með HK þar sem hann var á seinasta tímabili.

Siggi Branz varaformaður knattspyrnudeildar Reynis var að vonum mjög sáttur og hafði þetta að segja um komu Kekic.

,,Ég er mjög ánægður að fá Kela (Kekic), þetta er búið að taka 3 vikur síðan við byrjuðum að tala saman. Hann verður mikil styrkur fyrir okkur í sumar. Áhugavert er að þetta skuli gerast á afmælisdeginum mínum. Þetta er tvöföld hamingja fyrir mig og Reyni.\" Sagði Siggi léttur í lund við heimasíðu félagsins.

Heimild: Heimasíða Reynis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.