22.03.12 - 20:00
Magnús Már Einarsson
Krasimir Balakov tekur við Kaiserslautern (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Krasimir Balakov, fyrrum fyrirliði Búlgara, hefur verið ráðinn þjálfari hjá þýska félaginu Kaiserslautern.
Balakov hættir störfum hjá Hadjuk Split í Króatíu til að taka við Kaiserlautern.
Kaiserslautern er án sigurs í síðustu 16 leikjum en félagið rak þjálfarann Marco Kurz eftir 4-1 tap gegn Schalke á sunnudag.
,,Ég tók við þessu starfi því að ég hef trú á að við getum tekið okkur saman í andlitinu og forðast fall,\" sagði Balakov.
Kaiserslautern er sem stendur sex stigum frá öruggu sæti í Bunesligunni en liðið mætir Freiburg á laugardag.

Heimild: AP