Fotbolti.net
22.04.09 - 16:53
Magnús Már Einarsson

Marel Baldvinsson í Val (Staðfest)

Marel Baldvinsson í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Marel Baldvinsson hefur samið við Val út þessa leiktíð en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Óvissa hefur verið um framtíð Marels að undanförnu en hann hefur ekki æft með Breiðablik og núna hefur hann gengið til liðs við Val en félögin eru búin að komast að samkomulagi um kaupverð.

Breiðablik er eina liðið sem Marel hefur leikið með hér á landi en hann var í atvinnumennsku erlendis frá 2000-2006.

Hann skoraði ellefu mörk í þrettán leikjum sumarið 2006 og fór í kjölfarið til Molde í Noregi.

Fyrir síðasta tímabil gekk Marel síðan aftur til liðs við Breiðablik og í fyrra skoraði hann sex mörk í nítján leikjum í efstu deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.