22.04.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Erla Karítas Pétursdóttir í Fylki (Staðfest)

Kvennalið Fylkis hefur fengið liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Markvörðurinn Erla Karítas Pétursdóttir er gengin til liðs við Pepsi-deildar lið Fylkis frá ÍA.
Hún er uppalin í ÍA þar sem hún hafði leikið allan sinn feril þegar hún var lánuð til Fylkis í febrúar en þá vantaði Árbæjarfélagið markvörð til að spila í undirbúningsmótunum.
Hún sneri aftur til ÍA í mars en gekk svo til liðs við Fylki endanlega nú í apríl.
Erla Karítas hafði hafið meistaraflokksferil sinn hjá ÍA árið 2009 og hefur leikið 10 leiki fyrir félagið.
Fylkir hefur því fengið tvo markverði til liðs við sig í vetur því Íris Dögg Gunnarsdóttir kom frá KR en hún er í námi erlendis og kemur í byrjun maí.
Félagið missti Björk Björnsdóttur sem fór í atvinnumennsku í Noregi.