22.05.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Elín Svavarsdóttir til Vittsjö í Svíþjóð (Staðfest)

Elín Svavarsdóttir er hér vinstra megin í leik með Aftureldingu í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Elín Svavarsdóttir er gengin í sænska 1. deildarliðsins Vittsjö og spilaði með liðinu í bikarleik gegn Dóru Stefánsdóttur og félögum hennar í LdB FC Malmö í gær.
Elín er enn einn íslenski leikmaðurinn sem fer til Svíþjóðar en hún verður annar Íslendingurinn í sænsku 1. deildinni. Hin er Ásta Árnadóttir hjá Tyresö. Þá er mikill fjöldi íslenskra stúlkna í úrvalsdeildinni.
Elín er 25 ára gamall varnarmaður sem lék með Aftureldingu í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð.
Hún lék 15 leiki með liðinu í deildinni þá og skoraði fjögur mörk.
Hún hefur einnig leikið með Val og FH hér á landi. Samtals hefur hún leikið 47 leiki í efstu deild og skorað í þeim fjögur mörk.