Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Courtois vill ljúka ferlinum hjá Real Madrid
Mynd: EPA
Samningur Thibaut Courtois, markmanns Real Madrid, rennur út á næsta ári og hafa því einhverjar sögusagnir verið á kreiki um að hann sé að yfirgefa félagið.

Hann batt hins vegar enda á þær sögusagnir en hann hefur staðfest að viðræður um nýjan samning séu í gangi.

„Ég vonast til að framlengja. Ég er mjög ánægður hjá Real Madrid, það er draumur að spila hérna og hvert einasta ár í viðbót væri annar draumur. Félagið veit að ég vil vera áfram og ég vonast til að leggja hanskana á hilluna sem leikmaður Real Madrid. Samtalið er virkt en nú er tími til að sýna sig og sanna á vellinum," sagði Courtois.

Courtois sleit krossband árið 2023 og kom aðeins við sögu í fimm leikjum tímabilið 2023/24 en var kominn aftur á fullt á síðustu leiktíð og spilaði 48 leiki í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner