Fotbolti.net
22.07.08 - 14:07
Davíð Örn Atlason

Achille Emana til Real Betis (Staðfest)

Emana í baráttu við El-Hadji Diouf

Emana í baráttu við El-Hadji Diouf

Canon

Mynd: Getty Images

Achille Emana er genginn í raðir spænska liðsins Real Betis frá franska liðinu Toulouse.
Kaupverðið er talið vera um sjö milljónir evra og Emana hafði verið orðaður við Newcastle og West Ham.

Hann ákvað hinsvegar að skrifa undir fimm ára samning við Real Betis og mun byrja að æfa með liðinu í dag.

Toulouse höfnuðu tveimur tilboðum í Emana, sem var samningsbundinn til ársins 2011 áður en að þeir náðu að klófesta hann.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.