Fotbolti.net
22.07.08 - 12:37
Magnús Már Einarsson

Almarr Ormarsson í Fram (Staðfest)

Almarr sparkar í tösku eftir að haf verið rekinn af velli gegn Víking fyrr í sumar.

Almarr sparkar í tösku eftir að haf verið rekinn af velli gegn Víking fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur fengið Almarr Ormarsson fyrirliða KA til liðs við sig og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram í dag.
Almarr er bróðursonur Þorvaldar Örlygssonar þjálfara Fram og sonur Ormars Örlygssonar, sem varð Íslandsmeistari með Fram árin 1986 og 1988, og Bikarmeistari með Fram árin 1985 og 1987.

Almarr, sem er miðju og sóknarmaður, hóf að leika með meistaraflokki hjá KA árið 2005 og hefur alls skorað átta mörk í 54 deildar og bikarleikjum með liðinu.

Í sumar hefur Almarr verið fastamaður hjá KA og leikið ellefu leiki, síðast gegn Víkingi R. í gær. Í þessum leikjum hefur hann skorað þrjú mörk.

Þessi tvítugi leikmaður á ellefu leiki að baki með U19 ára landsliði Íslendinga.

Almarr er annar leikmaðurinn sem Framarar fá eftir að félagaskiptaglugginn opnaði en Viðar Guðjónsson hefur einnig samið við félagið.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.