22.07.08 - 16:33
Magnús Már Einarsson
Henrique til Barcelona (Staðfest)
Í láni hjá Bayer Leverkusen á næsta tímabili

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur náð samningum við brasilíska félagið Palmeiras um kaup á varnarmanninum Henrique.
Henrique kemur til Börsunga á átta milljónir evra en hann hefur gert fimm ára samning við félagið.
Henrique, sem er 21 árs, mun hins vegar vera á láni hjá Bayer Leverkusen á komandi tímabili.
Búið er að taka til í herbúðum Börsunga og fleiri leikmannabreytingar eiga væntanlega eftir að eiga sér stað áður en sumarið er úti.
Félagið hefur auk Henrique fengið Martin Caceres, Gerard Pique, Daniel Alves, Aleksandr Hleb og Seydou Keita.

Heimild: Reuters