22.08.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
David Healy til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sunderland gekk í gærkvöldi frá kaupum á David Healy framherja Fulham en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Healy, sem er 29 ára gamall Norður-Íri, gerði þriggja ára samning við Sunderland.
,,Ég þekki Roy Keane frá tíma mínum hjá Manchester United og það eru forrétindi að koma til hans hjá Sunderland,\" sagði Healy.
Keane hefur verið grimmur á leikmannamarkaðnum í sumar og í gær krækti hann einnig í Djibril Cisse á láni frá Marseille.
Í sumar hefur Keane fengið Pascal Chimbonda, Teemu Tainio, El-Hadji Diouf og Steed Malbranque til Sunderland og þá er orðrómur um að félagið muni einnig reyna að fá Anton Ferdinand og Benni McCarthy áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Heimild: BBC