Fotbolti.net
22.08.08 - 10:35
Magnús Már Einarsson

Shaun Maloney til Celtic (Staðfest)

Shaun Maloney til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic hefur keypt miðjumanninn Shaun Maloney frá Aston Villa en kaupverðið hljóðar upp á 2,5 milljónir punda.
Maloney stóðst læknisskoðun í gær og í kjölfarið var gegnið frá samningum.

Þessi 25 ára gamli leikmaður fór frá Celtic til Aston Villa í janúar 2007 en hann hefur oft áður verið orðaður við endurkomu til skoska félagsins.

John Hallwell umboðsmaður Maloney segir að þrjú félög hafi haft áhuga á Maloney en hann ákvað að fara til Celtic.

Maloney gekk illa að festa sig í sessi hjá Aston Villa en hans bíður einnig hörð samkeppni hjá Celtic.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.