22.08.08 - 16:36
Magnús Már Einarsson
Borja Valero til WBA (Staðfest)

Tony Mowbray stjóri WBA.

Mynd: Getty Images

Tony Mowbray stjóri WBA.

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur keypt miðjumanninn Borja Valero frá Mallorca á 4,7 milljónir punda.
Borja hefur skrifað undir fjögurra ára samning við WBA en hann er dýrasti leikmaður félagsins frá upphafi.
Robert Earnshaw var áður dýrasti leikmaður WBA en hann kom til liðsins frá Cardiff á 3,5 milljónir punda árið 2004.
Borja er einnig níundi leikmaðurinn sem WBA fær í sumar en Tony Mowbray stjóri liðsins hefur alls eytt tuttugu milljónum punda í leikmannakaup.
,,Ég held að hann muni ekki eiga í neinum vandræðum með að aðlagast liðinu okkar eða að spila í ensku úrvalsdeildinni en það á auðvitað eftir að taka smá tíma að aðlagast enska leiknum,\" sagði Mowbray.

Heimild: BBC