Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur náð mögnuðum árangri með Gróttu undanfarin tvö tímabil.
Hann kom liðinu upp úr 2. deild í fyrstu tilraun og í Inkasso-deildinni gerði hann slíkt hið sama. Grótta vann 4-0 sigur á Haukum í lokaumferð deildarinnar í gær og tryggði sér sigur í deildinni.
Undir stjórn Óskars hefur Grótta treyst mikið á unga leikmenn og spilað skemmtilegan fótbolta í leiðinni.
Óskar setti inn færslu á Twitter liðna nótt og var hún mjög einföld. Í henni stóð einfaldlega:
„Takk fyrir okkur."
Það verður spennandi að fylgjast með Gróttu í Pepsi Max-deildinni næsta sumar, en óvíst er hvort Óskar haldi áfram með liðið. Hér að neðan má sjá viðtal sem tekið var við hann í gær.
takk fyrir okkur 🙏
— OskarHrafn (@oskar_hrafn) September 22, 2019
Athugasemdir