Fotbolti.net
22.09.22 - 23:58
Brynjar Ingi Erluson

Tekur Scott Parker við Nice?

Scott Parker

Scott Parker

Canon

Mynd: EPA

Enski þjálfarinn Scott Parker gæti tekið við franska liðinu Nice á næstu dögum en það er franski miðillinn Foot Mercato sem greinir frá.
Parker er án starfs eftir að hafa verið rekinn frá Bournemouth í lok ágúst.

Stjórinn kvartaði yfir því í allt sumar að hann þyrfti að styrkja hópinn til að geta veitt öðrum liðum samkeppni í ensku úrvalsdeildinni en ekki var hlustað á hann. Byrjun liðsins var erfið og á endanum tók hann poka sinn.

Hann gæti verið á leið aftur í þjálfun eftir stutt frí, en hann er á lista hjá franska félaginu Nice.

Nice mun reka Lucien Favre, þjálfara liðsins, á næstu dögum og er því félagið í leit að arftaka hans. Mauricio Pochettino, fyrrum þjálfari Tottenham og Paris Saint-Germain, var í viðræðum við Nice, en þær viðræður hafa kólnað síðasta sólarhringinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.