Fotbolti.net
22.10.08 - 20:38
Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll ráðinn þjálfari HK (Staðfest)

Rúnar Páll Sigmundsson.

Rúnar Páll Sigmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá HK til eins árs og fær því það verkefni að stjórna liði félagsins í 1. deildinni keppnistímabilið 2009. Þetta kom fram á vefsíðu félagsins í kvöld.
Rúnar Páll, sem lék með HK 2007, gerðist aðstoðarþjálfari meistaraflokks þá um haustið og tók síðan í júlí þegar Gunnari Guðmundssyni var sagt upp störfum.

Undir stjórn Rúnars átti HK góðan endasprett í Landsbankadeildinni þar sem liðið fékk 13 stig úr síðustu 8 leikjum sínum. Með sama stigahlutfalli allt tímabilið hefði lið HK verið í baráttu um Evrópusæti en slæmt gengi framan af sumri þýddi að þessi stigasöfnun nægði ekki til að halda liðinu í deildinni.

Rúnar, sem er 34 ára gamall, var áður þjálfari Stjörnunnar í 1. deild árið 2003. Hann mun funda með leikmönnum meistaraflokks þann 30. október og undirbúningstímabilið hefst í framhaldi af því. Rúnar er nú staddur í Þrándheimi í Noregi þar sem hann hefur í þessari viku fylgst með undirbúningi liðsins fyrir leik gegn Club Brugge í UEFA-bikarnum sem fram fer annað kvöld.

Hér á eftir fer tilkynning frá meistaraflokksráði HK þar sem farið er yfir ráðningu Rúnars og stöðu mála fyrir næsta tímabil.
Rúnar Páll Sigmundsson mun þjálfa meistaraflokkslið HK í knattspyrnu tímabilið 2009. Nokkuð er síðan gengið var frá samningum en vegna tæknilegra atriða er varða þjálfaramenntun Rúnars var ákveðið að bíða með tilkynninguna þangað til að öruggt væri að Rúnar gæti lokið tilskyldum prófum fyrir komandi tímabil.

Rúnar hefur skilað mjög góðu starfi síðan hann tók við liðinu á miðju sumri og meistaraflokksráð HK er mjög ánægt með að hafa náð samningum við hann.

Það er ljóst að knattspyrnudeildin þarf að fara í gegnum mikla vinnu á næstunni varðandi endurskipulagningu í ljósi atburða síðustu vikna. Sú staða liggur fyrir að tekjugrundvöllur deildarinar er nánast hruninn og nú þarf að leita leiða til halda starfseminni gangandi án mikilla truflana. Það er þó einnig ljóst eins og hjá öllum öðrum liðum að skera verður niður kostnað með öllum tiltækum ráðum til þess að endar nái saman.

Rúnar hefur sýnt gott fordæmi og tekið á sig launalækkun til að bregðast við þessu ástandi og meistaraflokksráð mun á næstu vikum ræða við leikmenn og aðra starfsmenn deildarinnar um breyttar forsendur. Allir þeir erlendu leikmenn sem komu til liðsins á síðasta leikári eru farnir frá félaginu.

Ljóst er því að félagið mun byggja árangur komandi ára á uppöldum leikmönnum félagsins. Félagið kvíður ekki komandi árum þar sem félagið hefur á að skipa mörgum gríðarlega efnilegum ungum leikmönnum, sem margir hafa nú þegar spilað heilt tímabil í efstu deild.

Eins eru að koma upp í 2. flokk mjög spennandi leikmenn þannig að framtíðin er björt hjá HK. Við þennan mikla efnivið ungra leikmanna styðja síðan reyndari leikmenn félagsins sem gegnt hafa lykilhlutverki í leik liðsins á undanförnum tímabilum, leiddir áfram af landsliðsmarkmanni Íslands.

Við HK-ingar förum brosandi inn í veturinn og ætlum að tækla þessa kreppu upp í nára, hún fer aftur þaðan sem hún kom liggjandi á börunum.

Nú ríður á að standa saman og verja hag félagsins í hvívetna, það er á tímum sem þessum sem við verðum að sýna úr hverju við erum gerðir – Áfram HK!

Fyrir hönd meistaraflokksráðs,
Pétur Arason formaður

Heimild: Vefsíða HK

Rúnar Páll ráðinn þjálfari HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.