Mikið ber á milli Man Utd og Roma í viðræðum um Zirkzee - Chelsea hyggst styrkja miðsvæðið og er orðað við Mainoo og Wharton
banner
   fös 22. október 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Dortmund heldur pressu á Bayern
Alfreð kemur eflaust við sögu í kvöld
Mynd: EPA
Níunda umferð þýska deildartímabilsins fer af stað í kvöld þegar Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg heimsækja Mainz. Augsburg er aðeins með sex stig eftir átta umferðir og er Alfreð nýkominn aftur úr meiðslum.

Morgundagurinn hefst með látum þar sem FC Bayern, Borussia Dortmund og RB Leipzig mæta öll til leiks á sama tíma.

Topplið Bayern á heimaleik við Hoffenheim á meðan Dortmund heimsækir nýliða Arminia Bielefeld. Aðeins eitt stig skilur að á milli stórveldanna á toppi deildarinnar þar sem Erling Haaland og Robert Lewandowski hafa verið að spila uppá sitt besta og eru komnir með 9 mörk á haus.

RB Leipzig hefur ekki farið jafn vel af stað og þarf sigur í dag gegn Greuther Fürth.

Hertha Berlin og Borussia Mönchengladbach mætast í spennandi slag til að ljúka laugardeginum og svo eru þrír leikir á dagskrá á föstudeginum, þar á meðal viðureign Kölnar gegn Bayer Leverkusen sem situr í þriðja sæti.

Viaplay er með sýningarréttinn á þýska boltanum.

Föstudagur:
18:30 Mainz - Augsburg

Laugardagur:
13:30 Bayern - Hoffenheim
13:30 RB Leipzig - Greuther Furth
13:30 Wolfsburg - Freiburg
13:30 Arminia Bielefeld - Dortmund
16:30 Hertha - Gladbach

Sunnudagur:
13:30 Köln - Leverkusen
15:30 Stuttgart - Union Berlin
17:30 Bochum - Eintracht Frankfurt
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 14 12 2 0 51 11 +40 38
2 RB Leipzig 14 9 2 3 29 16 +13 29
3 Dortmund 14 8 5 1 24 12 +12 29
4 Leverkusen 14 8 2 4 30 19 +11 26
5 Hoffenheim 14 8 2 4 29 20 +9 26
6 Stuttgart 14 8 1 5 25 22 +3 25
7 Eintracht Frankfurt 14 7 3 4 29 29 0 24
8 Union Berlin 14 5 3 6 19 23 -4 18
9 Freiburg 14 4 5 5 21 23 -2 17
10 Köln 14 4 4 6 22 23 -1 16
11 Gladbach 14 4 4 6 18 22 -4 16
12 Werder 14 4 4 6 18 28 -10 16
13 Wolfsburg 14 4 3 7 20 24 -4 15
14 Hamburger 14 4 3 7 15 24 -9 15
15 Augsburg 14 4 1 9 17 28 -11 13
16 St. Pauli 14 3 2 9 13 26 -13 11
17 Heidenheim 14 3 2 9 13 30 -17 11
18 Mainz 14 1 4 9 13 26 -13 7
Athugasemdir
banner